29 Apríl 2020 10:31
Brot 59 ökumanna voru mynduð á Reykjavegi í Mosfellsbæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjaveg í vesturátt, að Krikatorgi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 170 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 83.
Vöktun lögreglunnar á Reykjavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.