27 Nóvember 2023 16:22

Brot 32 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Breiðholtsbraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.350 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 93 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 103.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.