2 Nóvember 2023 10:28

Brot 153 ökumanna voru mynduð á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, á móts við Straum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 596 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 85 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði (lækkaður hámarkshraði v/framkvæmda). Sá sem hraðast ók mældist á 98.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.