20 Júní 2024 12:22

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Njarðargötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Njarðargötu í norðurátt, við Íslenska erfðagreiningu . Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 184 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Njarðargötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.