14 Maí 2024 15:54

Brot 26 ökumanna voru mynduð á Nesvegi á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í vesturátt, á móts við Kolbeinsmýri. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 125 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fimmtungur ökumanna, eða 21%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 51 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 62.

Vöktun lögreglunnar á Nesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.