31 Janúar 2024 14:49

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Neshaga í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Neshaga í vesturátt, að Hjarðarhaga. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 105 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 45.

Vöktun lögreglunnar á Neshaga er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og snjór var á meðan hraðamælingunni stóð.