7 September 2023 10:04

Brot 28 ökumanna voru mynduð á Mosavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í vesturátt, við Vallengi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 151 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 56.

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.