8 Nóvember 2023 10:02

Brot 34 ökumanna voru mynduð á Laugavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Laugaveg í vesturátt, á móts við Hátún. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 318 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Laugavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.