21 Mars 2023 15:04

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Krókhálsi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Krókháls í vesturátt, að Stuðlahálsi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 157 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Krókhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.