15 Nóvember 2023 17:02

Brot 38 ökumanna voru mynduð á Kalkofnsvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Kalkofnsveg í suðurátt, við Hörpu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 292 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Kalkofnsvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.