15 Janúar 2024 15:34

Brot 39 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, að Bræðraborgarstíg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 372 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.