1 September 2023 11:39

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Hringbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hringbraut í vesturátt, á móts við Flensborgarskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 62 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 42 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar á Hringbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.