19 Október 2023 11:14

Brot 2 ökumanna voru mynduð á Hofsvallagötu í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hofsvallagötu í norðurátt, við Haga. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 95 ökutæki þessa akstursleið og því óku mjög fáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 58 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Hofsvallagötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.