14 Desember 2010 12:00
Brot 125 ökumanna voru mynduð á Hafnarfjarðarvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hafnarfjarðarveg í norðurátt, gegnt Akrahverfi í Garðabæ. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 1.083 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega tíundi hluti ökumanna, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 92 km/klst en þarna er 80 km hámarkshraði. Sex óku á 100 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 105.
Á umræddum vegarkafla hefur verið nokkuð um umferðaróhöpp og þannig var vöktun lögreglunnar tilkomin. Hún mun jafnframt verða við hraðamælingar á fleiri slíkum stöðum á næstunni. Þess má geta að við hraðamælingar á þessum stað á Hafnarfjarðarvegi fyrir fáeinum vikum var brotahlutfallið ívið hærra, eða 14%.