18 Apríl 2023 11:41

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Háaleitisbraut í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Háaleitisbraut í norðurátt, á móts við Háaleitisbraut 83. Á einni klukkstund, fyrir hádegi, fóru 217 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 4%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 52.

Vöktun lögreglunnar á Háaleitisbraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.