14 Apríl 2023 10:04

Brot 171 ökumanns var myndað á Gullinbrú í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullinbrú í norðurátt, norðan brúarinnar. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 680 ökutæki þessa akstursleið og því ók fjórðungur ökumanna, eða 25%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92.

Vöktun lögreglunnar á Gullinbrú er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.