29 Ágúst 2023 09:25

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í vesturátt, á móts við Foldaskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 88 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða 6%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 47.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.