10 Maí 2023 09:55

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Fjallkonuvegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fjallkonuveg í austurátt, við Hverafold. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 180 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 53 km/klst en þarna er 40 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 65.

Vöktun lögreglunnar á Fjallkonuvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.