11 Júlí 2023 15:23

Brot 68 ökumanna voru mynduð á Digranesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Digranesveg í austurátt, á móts við Kópavogsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 142 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 48%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 61.

Vöktun lögreglunnar á Digranesvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.