3 Nóvember 2023 10:35

Brot 5 ökumanna voru mynduð á Bústaðavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bústaðaveg í vesturátt, við Bústaðakirkju. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 243 ökutæki þessa akstursleið og því óku sárafáir ökumenn, eða 2%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 84.

Vöktun lögreglunnar á Bústaðavegi er liður í umferðareftirliti hennar  á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.