18 Október 2023 12:45

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Brúnavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Brúnaveg í austurátt, að Kleifarvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 113 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar á Brúnavegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.