2 Maí 2023 11:16

Brot 254 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 27. apríl til þriðjudagsins 2. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í vesturátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á tæplega fimm sólarhringum fóru 37.507 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 78 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 95. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.