4 Febrúar 2022 10:02
Brot 93 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá mánudeginum 31. janúar til fimmtudagsins 3. febrúar. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurrátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á þremur sólarhringum fóru 18.414 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 92. Einu ökutæki var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.
Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.