16 September 2024 10:17

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Breiðholtsbraut í Reykjavík frá fimmtudeginum 12. september til mánudagsins 16. september. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Breiðholtsbraut í austurátt, á gatnamótum við Stekkjarbakka. Á fjórum sólarhringum fóru 12.560 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 80 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 101. Þremur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Breiðholtsbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.