16 September 2016 16:03
Brot 17 ökumanna voru mynduð á Barónsstíg í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Barónsstíg í norðurátt, á móts við Austurbæjarskóla. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 112 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.
Vöktun lögreglunnar á Barónsstíg er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.