21 Júní 2022 09:46
Brot 61 ökumanns var myndað á Bæjarhálsi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarháls í vesturátt, á móts við Orkuveituna. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 469 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 13%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 77.
Vöktun lögreglunnar á Bæjarhálsi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.