17 Ágúst 2023 09:52

Brot 72 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Fífuhvammsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 359 ökutæki þessa akstursleið og því ók fimmtungur ökumanna, eða 20%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 73 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 100.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.