17 Janúar 2024 16:19

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í vesturátt, að gamla Álftanesvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 238 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 10%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 93.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.