18 Ágúst 2023 12:38

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Álfhólsvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsveg í vesturátt, á móts við Álfhólsskóla. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 68 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.