8 Júlí 2024 15:15

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Álfaskeiði í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfaskeið í suðurátt, á móts við Álfaskeið 113. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 50 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega þriðjungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 54.

Vöktun lögreglunnar á Álfaskeiði er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.