21 Febrúar 2022 13:13
Töluverður erill var hjá björgunarsveitum og viðbragðsaðilum öllum þi hvassviðri sem gekk yfir landið í gær. Tjón varð á sumarhúsi í Fljótshlíð og rúður brotnuðu í íbúðarhúsnæði og í bílum í Öræfum. Þá þurfti að aðastoða vegfarendur vegna ófærðar víða um Suðurlandið, einkum á svæðinu frá Hvolsvelli og þar austan við.
Snjóhengja féll á tvo dengi sem voru að leik við Hamarinn í Hveragerði á laugardag. Þar voru bræður á ferð og náði sá eldri að kalla til aðstoðar og hefja björgunaraðgerðir strax á vettvangi með því að staðsetja og hreinsa snjó frá vitum þess yngri. Björgunarsveitir frá Hveragerði og Selfossi komu til aðstoðar sjúkraliði og var drengurinn fluttur á sjúkrahús á Selfossi þar sem í ljós kom að áverkar voru algerlega minniháttar.
4 ára drengur féll í sprungu við Hakið á Þingvöllum þann 15. febrúar. Björgunarsveitir kallaðar til en nærstaddur björgunarsveitarmaður við aðra vinnu á svæðinu fór í snatri í sprunguna og hlúði að drengnum þar til hann var hífður upp. Meiðslin talin minniháttar.
Skurðir eru nú að fyllast eða fullir af snjó og girðingar víða í kafi. Það þýðir að vænta má þess að hross leggi leið sína út á vegi og skynsamlegt að hafa það í huga þegar farið er um sveitir landisins. Þannig bárust tilkynningar um laus hross við Múla í Biskupstungum og reyndar um hreindýr austur undir Höfn en það mun flóknara að girða svo það haldi þeim hvort sem snjóar eða ekki.
Tveir ökumenn, annar í Árnesssýslu en hinn í Rangárvallasýslu, voru stöðvaðir í liðinni viku vegna gruns um að þeir væru ölvaðir við akstur bifreiða sinna. Annar til er grunaður um að hafa ekið bifreið sinni undir áhrifum fíkniefna. Sá var stöðvaður í V-Skaftafellssýslu en í fórum hans fundust kannabisefni. Tveir þessara þriggja ökumanna eru erlendir ferðamenn með stutta viðkomu hér á landi.
Ökumaður vöruflutningabifreiðar reyndist ekki nota ökuritaskífu við akstur bifreiðar sinnar um Suðurlandsveg vestan Selfoss þann 17. febrúar. Hann á von á sekt fyrir brot sitt sem og rekstraraðili bifreiðarinnar.
Ökumaður fólksflutningabifreiðar sem stöðvuð var í Vík reyndist með útrunnin ökuréttindi frá 2018 og ekki með ökumannskort í ökurita. Bifreiðin kyrrsett og sendi rekstraraðili annan bílstjóra úr Reykjavík til að taka við. Ökumaðurinn situr uppi með sekt.
Annar sem stöðvaður var á Suðurlandsvegi við Selfoss reyndist nota ökumannskort annars manns í ökuritann. Bæði hann og rekstraraðili bifreiðarinnar fá sekt vegna þessa.
Ökumaður pallbíls á Selfossi var stöðvaður fyrir að flytja farþega á palli bifreiðarinnar aðfaranótt 21. febrúar. Annar var kærður fyrir að nota farsíma án handfrjáls búnaðar við akstur.
21 ökumaður var kærður fyrir að aka of hratt. Af þeim voru 20 á svæðinu í kring um Vík og Kirkjubæjarklaustur en 1 í Árnessýslu.
14 umferðaróhöpp voru tilkynnt lögreglu í liðinni viku. Flest án meiðsla. Í einu tilvikinu var um að ræða árekstur 5 til 6 bíla við Stigá í Sveitarfélaginu Hornafirði þar sem ófærð hamlaði umferð um veginn. Ekki slys á fólki en björgunarsveit kölluð til til aðstoðar við málsaðila.