19 Janúar 2015 15:54
Eftir nokkuð annasamar vikur í byrjun árs var síðasta vika með rólegra móti hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og lítið um útköll á öldurhús bæjarins. Eitthvað var þó, að vanda, um að aðstoða þyrfti fólk vegna hinna ýmsu atvika sem upp komu í tengslum við skemmtanahald þess.
Eitt umferðaróhapp var tilkynnt lögreglu í liðinni viku án þess þó að um slys á fólki hafi verið um að ræða. Óhappið átti sér stað á gatnamótum Kirkjuvegar og Skólavegar en ökumaður bifreiðar sem ekið var eftir Kirkjuvegi missti stjórn á akstrinum sökum hálku með þeim afleiðingum að bifreiðin sem hann ók lenti á kyrrstæðri bifreið sem var á gatnamótunum. Önnur bifreiðin var óökufær eftir áreksturinn og var flutt í burtu með kranabifreið.