31 Janúar 2024 09:35

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar í Hvalfjarðargöngunum í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið göngin í norðurátt. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 117 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða. Hinir brotlegu mældust báðir á 80 en þarna er 70 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar í Hvalfjarðargöngunum er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.