13 Nóvember 2023 14:55

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Nesvegi í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Nesveg í austurátt, við Nesveg 53. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 163 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 40 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Nesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.