21 Desember 2023 09:13

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Mosavegi í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Mosaveg í vesturátt, á móts við Vallengi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 80 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Mosavegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.