31 Maí 2024 11:50

Dregið hefur verulega úr virkni eldgossins sem hófst 29. maí sl.   Hraunrennsli er aðallega á svæðinu í kringum Hagafell.   Þá sýndu GPS mælingar að land í Svartsengi seig um 15 cm þegar kvika hljóp þaðan.   Þrengt hefur verulega að Grindavíkurbæ sökum hraunrennslis.   Hluti Nesvegur inn við Grindavík er undir hrauni og þá rann hraun yfir Grindavíkurveg fyrir ofan bæinn.   Greiðfært er um Suðurstrandarveg sem heita má eina viðunandi flóttaleiðin út úr bænum.   Lokunarpóstar eru á Grindavíkurvegi, Suðurstrandarvegi og á Nesvegi.   Þrengt hefur að aðkomuleiðum Bláa lónsins þar sem hraun rann yfir Bláalónsveg við Nesveg.  Bláa lónið er lokað við núverandi aðstæður.   Fyrirtæki vinna við viðhald eigna og verðmætabjörgun í Grindavík í dag og næstu daga.  Sömu sögu er að segja með starfsemina inn í Svartsengi.

Íbúum í Grindavík er heimilt að fara inn í bæinn en sem fyrr mælir lögreglustjóri ekki með því og ítrekar að  börn dvelji ekki í bænum.   Þá mælir lögreglustjóri alls ekki með því að íbúar dvelji í bænum næturlangt.  Hver og einn ber ábyrgð a eigin athöfnum eða athafnaleysi.  Lögreglustjóri væntir þess að nú þegar við erum að upplifa áttunda gosið á Reykjanesskaga að þeir fáu einstaklingar sem hundsað hafa framangreind tilmæli hingað til, taki tillit til alls þess sem hefur verið gert í þágu Grindvíkinga og verji þá hagsmuni og sýni því skilning í þágu heildarhagsmuna.  

Blaðamenn með viðeigandi búnað eiga aðgang að svæðinu.  Þeir geri grein fyrir sér á lokunarpóstum og láti vita af sér í aðstöðu vettvangsstjórnar inn í Grindavík fari þeir inn í bæinn.

Ekki er heimilt að ganga inn á gossvæðið frá Grindavíkurvegi.    Bannið tekur ekki til viðbragðsaðila, hóps vísindamanna og einstaklinga á vegum Blaðamannafélags Íslands með vísan til samkomulags félagsins við lögreglustjórann á Suðurnesjum .  Á hættustundu er lögreglustjóra heimilt að vísa á brott eða fjarlægja fólk af hættusvæði.  

Meðfylgjandi hættumatsskort Veðurstofu Íslands gildir til kl. 15 í dag.

Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík og lögregla og slökkvilið sinna lögbundnu eftirliti í bænum eins og verið hefur.  Þá er sjúkrabíll staðsettur í Grindavík alla daga á dagtíma.

Gagnlegar upplýsingar eru á heimasíðu Grindavíkurbæjar á slóðinni https://grindavik.is/   þá er bent á heimasíðu Veðurstofu Íslands á slóðinni www.vedur.is og heimasíðu almannavarna á slóðinni  www.almannavarnir.is

Með vísan til 23. gr. laga um almannavarnir nr. 88/2008 eru takmarkanir ekki aðrar en að framan greinir.

Framangreint fyrirkomulag gildir til  4. júní 2024 að öllu óbreyttu.