29 Maí 2024 14:22
Eldgos er hafið á Reykjanesskaga nærri Sundhnúkum norðan við Grindavík og virðist staðsett norðaustan við Sýlingafell. Eldgosið hófst klukkan 12:46 og er á svipuðum slóðum og fyrri gos á Sundhnúksgígaröðinni.
Grindavík, Bláa lónið og orkuverið í Svartsengi voru rýmd fyrir hádegi í dag. Sú aðgerð gekk vel. Viðbragðsaðilar eru við störf í Grindavík. Þá dvelja enn þrír íbúar í Grindavík þrátt fyrir tilmæli viðbragðsaðila um að koma sér út úr bænum. Slík viðbrögð eru ekki til eftirbreytni. Ekki hefur komið til þess að lögregla hafi beitt valdi í þessum aðgerðum. Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýst yfir neyðarstigi vegna eldgossins.
Fréttamönnum og blaðamönnum hefur verið hleypt nærri eldstöðvunum í fylgd viðbragsaðila. Þeir eru með viðeigandi búnað og blaðamannapassa samkvæmt samkomulagi Blaðamannafélags Íslands við lögreglustjórann á Suðurnesjum. Hamfarasvæðið er að öðru leyti lokað öðrum en viðbragðsaðilum. Lokunarpóstur er við gatnamót Grindavíkurvegar og Reykjanesbrautar og sem fyrr á Nesvegi og Suðurstrandarvegi.