5 Mars 2011 12:00
Í gærmorgun, þann 4. þ.m., fann lögreglan á Vestfjörðum tæp 70 grömm af kannabisefnum. Efnið fannst við húsleit sem lögreglan framkvæmdi í húsi einu á Ísafirði. Ungur maður var handtekinn í þágu rannsóknar málsins. Hann hefur viðurkennt að hafa átt efnið og ætlað það til dreifingar á svæðinu. Manninum var sleppt að yfirheyrslum loknum í gærkveldi, enda telst málið upplýst. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglunnar vegna fíkniefnamála. Fíkniefnaleitarhundurinn á Vestfjörðum, Dollar, var notaður við fíkniefnaleitina.
Lögreglan hvetur alla þá sem búa yfir upplýsingum eða grunsemdum um fíkniefnameðhöndlun um að koma þeim á framfæri. Það er hægt að gera í síma 450 3730 (upplýsingasími lögreglunnar á Vestfjörðum) eða í síma 800 5005 (talhólf lögreglu og tollgæslu á landsvísu varðandi fíkniefnaupplýsingar). Fullrar nafnleyndar er heitið.