5 Desember 2012 12:00
Samkvæmt tölum lögreglu hefur slysum í umferð, þar sem meiðsl verða á vegfarendum, fækkað síðustu ár. Þannig hefur slysum fækkað á höfuðborgarsvæðinu um 10% fyrstu ellefu mánuði ársins 2012 borið saman við sama tímabil 2011 og um 39% frá árinu 2008.
Þegar skoðaðar eru tölur Umferðarstofu frá 2008 til 2011 er sýna orsök umferðarslysa, má sjá að slysum er tengjast áhættuhegðun í umferð fer fækkandi. Þar má nefna slys sem rakin eru til aksturs á móti rauðu ljósi, brots gegn stöðvunarskyldu, brots gegn biðskyldu, ölvunaraksturs, fíkniefnaaksturs, of stutts bils milli bifreiða og ógætilegs framúraksturs.
Þá er tölfræðilegur samanburður við Norðurlöndin síðustu ár síður en svo óhagstæður fyrir umferðarmenningu hér á landi. Svo virðist því sem tillitssemi ökumanna í umferð sé að aukast, þeir aki gætilegar en áður og af meiri árvekni og ábyrgð.
Það er því mat lögreglu að umferðarmenning hér á landi hafi farið batnandi á síðustu árum og að við höfum alla burði til að ná enn betri árangri í fækkun slysa á þeim næstu.
Tölur lögreglu um fjölda slysa í umferð og tölur Umferðarstofu um helstu orsakir þeirra má finna hér.