19 Október 2024 12:39

Tveir voru fluttir á slysadeild með alvarlega reykeitrun eftir að eldur kom upp í herbergi á meðferðarheimilinu Stuðlum skömmu fyrir klukkan sjö í morgun.

Tilkynning um eldinn barst viðbragðsaðilum kl. 07:40 í morgun og fór allt tiltækt lið á vettvang. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins en töluverður reykur myndaðist og þurfti að reykræsta húsnæðið í kjölfarið.

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er á frumstigi. Tæknideild lögreglu er á vettvangi og heldur vinnu hennar þar áfram í dag.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.