19 Nóvember 2024 14:31

Aðfaranótt sunnudagsins 17. nóvember sl. varð eldur laus í einu húsa eggjabúsins Nesbús í Vogum á Vatnsleysuströnd.  Slökkviliði frá Brunavörnum Suðurnesja gekk greiðlega að slökkva eldinn.  Lögreglan á Suðurnesjum fer með rannsókn málsins í samstarfi við tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.  Talið er að um 6000 fuglar hafi farið þarna forgörðum.  Rannsókn á vettvangi er nú lokið en að svo stöddu liggja ekki fyrir upplýsingar um hvað þarna fór úrskeiðis.  Rannsókn lögreglu heldur því áfram.