19 Október 2024 17:48

Annar þeirra sem fluttir voru á slysadeild eftir að eldur kom upp í húsnæði Stuðla í morgun, er látinn. Lést hann á gjörgæslu skömmu eftir komuna þangað. Hinn látni var 17 ára.

Líðan hins mannsins er eftir atvikum en hann er ekki talinn í  lífshættu.

Eldsupptök eru ókunn en rannsókn lögreglu á brunavettvangi stendur yfir.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.