29 Júlí 2010 12:00
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með viðamikið eftirlit um verslunarmannahelgina eins og jafnan áður. Áhersla hefur verið á eftirlit með ferðavögnum/eftirvögnum og skráningu og skráningarmerkjum ökutækja. Slíkt eftirlit hefur verið mjög virkt hjá lögreglu síðustu vikur og hafa fjölmörg ökutæki verið stöðvuð og skoðuð á þjóðvegum í umdæminu. Það er ánægjulegt að sjaldnast hefur verið ástæða fyrir lögreglu til að kæra en í nokkrum tilvikum hefur ökumönnum verið bent á atriði sem þeir þurfa að laga. Flestar aðfinnslur gátu ökumenn lagað á vettvangi eða ábendingarnar fóru með ferðalöngunum sem gott veganesti. Í flestum tilvikum virðast ferðalangar því huga vel að ástandi ferðavagna/ökutækja og passa að fyllsta öryggis sé gætt.
Jafnframt þessu verður haldið úti eftirliti í hverfum í umdæminu. Það er fátt óskemmtilegra en að koma heim úr ferðalagi og verða þess var að innbrotsþjófar hafi látið greipar sópa um heimilið. Af þeirri ástæðu munu lögreglumenn fylgjast með íbúðarhúsnæði um verslunarmannahelgina eins og kostur er. Lögreglan vill jafnframt hvetja fólk, sem heldur burt af höfuðborgarsvæðinu í lengri eða skemmri tíma, til að ganga tryggilega frá heimilum sínum. Gott ráð er biðja nágranna um að líta eftir húsnæði. Fá þá til að kveikja ljós, fjarlægja póst, leggja í bílastæði o.s. frv. Sömuleiðis er minnt á mikilvægi þess að verðmæti séu ekki skilin eftir í augsýn en þjófar sækjast m.a. eftir fartölvum, myndavélum o.þ.h. hlutum. Þá er rétt að hafa hugfast að GPS-tækjum er oft stolið úr bílum og því nauðsynlegt að gera viðeigandi ráðstafanir þegar ökutæki er yfirgefið.
Lögreglan hvetur líka fólk til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir. Það getur oft skipt miklu máli að fá lýsingu á mönnum og bifreiðum. Það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan.