25 September 2024 15:52

Lögregla hefur reglubundið eftirlit með skotvopnaeigendum og geta viðkomandi átt von á heimsókn lögreglu án fyrirvara til að kanna vörslur skotvopna og skotfæra. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur heimsótt á þriðja hundrað manns það sem af er ári og heilt yfir eru skotvopnaeigendur að standa sig vel þegar kemur að vörslum skotvopna og skotfæri. Betur má þó ef duga skal og hefur það sýnt sig að margir virðast ekki meðvitaðir um nýlegar breytingar á vopnalögum sem tóku gildi fyrr á þessu ári. Þar vegur þyngst ákvæði um að öll skotvopn skulu geymd í viðurkenndum skotvopnaskápum, en fyrir breytinguna var þetta ekki krafa fyrr en við fjórða skotvopn. Þá er það jafnframt skylda að skotvopn skulu geymd á lögheimilum manna, nema sérstök undanþága lögreglu komi til.

Einnig er bent á að þó heimilt sé að lána skotvopn öðrum aðila með gilt skotvopnaleyfi skal slíkt lán ávallt vera skriflegt og skal lánþegi geta framvísað slíku leyfi sé þess óskað. Ef lánið er til lengri tíma en 4 vikna skal tilkynna lögreglu um lánið í gegnum island.is (Lánstilkynning skotvopns). Sömuleiðis eru nokkur brögð að því að í fórum manna finnist gömul skotvopn sem í flestum tilfellum reynast hafa komið „frá afa“ en eru ekki skráð á þann sem varslar þau. Afar mikilvægt er að skotvopnaleyfishafar séu meðvitaðir um að óheimilt er að varsla skotvopn án tilskilinna leyfa, óháð því hvort þau koma „úr sveitinni“ eða annars staðar frá. Þeim sem kunna að lúra á slíkum vopnum er bent á að hafa samband við leyfi@lrh.is og þá er í flestum tilfellum hægt að fá vopnin skráð á sig, enda er iðulega hægt að finna uppruna þeirra. Enn fremur er hægt að skila inn til lögreglu slíkum vopnum og láta farga þeim.

Að lokum er brýnt fyrir skotvopnaleyfishöfum að tryggja að skotvopnaleyfi sé í gildi, enda gera vopnalögin engan greinarmun á útrunnu leyfi og leyfisleysi. Hægt er að skoða eigin leyfi og skráð skotvopn á island.is – Mínar síður – Skírteini – Skotvopnaleyfi.