10 Desember 2014 14:14

Milli klukkan 01:30 og 06:00 aðfaranótt síðastliðins miðvikudags var farið inn á lóð HS veitna að Eyravegi 53 á Selfossi og þaðan stolið 130 til 150 metrum af þriggja fasa koparkapli.  Á sama tímabili var brotist inn í skrifstofu ÞÁ bíla við Eyraveg 51 og þaðan stolið peningum.  Hjólför voru á vettvangi, sennilega eftir litla sendiferðabifreið.  Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um ferðir bíls og manna á umræddu tímabili að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010.