13 Febrúar 2007 12:00
Mánudaginn 12. febrúar kl. 20:00 hélt Lögreglan á Vestfjörðum borgarafund með íbúum Reykhólahrepps. Á fundinum var farið yfir áherslur lögreglunnar á löggæslu svæðisins og kallað eftir sýn íbúanna á þeirri löggæslu og afstöðu þeirra til málefna löggæslunnar almennt. Um 11 % íbúa hreppsins mættu til fundarins. Eftir kynningu á embættinu svöruðu lögreglustjóri og aðrir lögreglumenn fyrirspurnum. Gagnlegar umræður urðu um löggæslumálefni svæðisins sem munu gagnast stjórnendum embættisins við framtíðskipulagningu löggæslunnar.
Þriðjudagskvöldið 13. febrúar n.k. verður samskonar fundur með bæjarbúum á Patreksfirði og í framhaldi af því fundað í flestum öðrum þéttbýliskjörnum umdæmisins. Vonir standa til að fólk mæti til þessara funda og láti sjónarmið sín þar í ljósi og þar með stuðla að framtíðskipulagningu löggæslunnar.