19 Apríl 2007 12:00
Frá afhendingu fíkniefnaleitarhundsins á Selfossi.
Í gær, miðvikudaginn 18 mai, afhenti embætti ríkislögreglustjóra lögreglunni á Selfossi fíkniefnaleitarhundinn Bea.
Bea hefur verið í strangri þjálfun hjá embætti lögreglustjórans á Eskifirði síðustu mánuði en það embætti sér um þjáflun fíkniefnaleitarhunda í samstarfi við embætti ríkislögreglustjóans ásamt Lögregluskóla ríkisins.
Bea kemur upphaflega frá Englandi þar sem hún var valin í stórum hópi hvolpa í það verkefni að verða leitarhundur. Um þjálfun Bea sá Steinar Gunnarsson, yfirþjálfari RLS og varðstjóri lögreglunnar á Eskifirði.
Nýr þjálfari Bea verður Jóhanna Eyvindsdóttir, lögreglumaður á Selfossi. Framundan hjá þeim Jóhönnu og Bea er námskeið í lögregluskólanum þar sem munu verða þjálfaðar til að vinna saman. Bea er mikill fengur fyrir lögregluna á Selfossi og góð viðbót við fíknienfalöggæslu í landinu.