7 Júlí 2022 09:20
Samantekt á afbrotatölfræði áranna 2018-2020 sýnir að covid-19 setti mark sitt á tíðni afbrota. Nauðgunum fækkaði en á sama tíma fjölgaði kynferðisbrotum gegn börnum.
Embætti ríkislögreglustjóra hefur unnið að því að gera gögn um afbrot árin 2018-2020 aðgengilegri en áður fyrir almenning. Gögn lögreglu um afbrot á landsvísu hafa verið sett fram í aðgengilegri tölfræðiskýrslu, og er mögulegt að nálgast allar tegundir brota sem skráð voru í málaskrá lögreglu á tímabilinu og greina eftir lögregluembætti, vettvangi og tíma brots.
Með tölfræðiskýrslunni hefur embættið einnig gefið út stutta samantekt um afbrot árið 2020. Þar kemur m.a. fram að árið 2020 setti Covid-19 faraldurinn mark sitt á tíðni afbrota. Hegningarlagabrot voru svipuð að fjölda árið 2020 og 2019, en 6% fleiri árið 2020 en síðustu 5 ár á undan. Mest var fjölgun á brotum gegn friðhelgi einkalífs, en þeim fjölgaði um nærri þriðjung. Ofbeldisbrot voru 8% fleiri, og við nánari greiningu þeirra mátti sjá að heimilisofbeldisbrotum fjölgaði. Kynferðisbrot voru svipuð að fjölda miðað við meðaltal síðustu 5 ára, en þegar litið er nánar á einstaka brotaflokka má sjá að nauðgunum fækkaði um fjórðung en blygðunarsemisbrot og kynferðisbrot gegn börnum voru 23-24% fleiri.
Sjá má samantektina í heild sinni hér.