30 Apríl 2013 12:00
Ríkisstjórnin samþykkti sl. förstudag áætlun innanríkisráðherra um aðgerðir gegn mansali á tímabilinu 2013 2016. Áætlun þessi er byggð á mannréttindasjónarmiðum og tekur annars vegar mið af þörf á að veita fórnarlömbum mansals stuðning og öryggi og hins vegar þörf á bættu verklagi og viðbúnaði stjórnvalda einkum innan réttarvörslukerfisins til þess að sporna gegn mansali hér á landi
Helstu áhersluþættir aðgerðaráætlunarinnar til næstu þriggja ára vegna mansalsmála eru forvarnir og fræðsla, aðstoð og stuðningur við fórnarlömb mansals, rannsóknir og saksókn mansalsmála, samvinna og samráð og mat á árangri. Í áætluninni eru tilteknar einstakar aðgerðir í samræmi við framangreindar áherslur. Endurskoðuð áætlun var kynnt stofnunum og hagsmunaaðilum í janúar sl. og í kjölfar kynningar send til umsagnar hjá umræddum aðilum og hefur verið tekið mið af helstu athugasemdum við gerð þessara draga. Þá hafa endurskoðuð drög verið send lykilaðilum til frekari umsagnar áður en gengið var frá endanlegum drögum.
Aðgerðaráætlunina má nálgast hér.