4 Apríl 2014 12:00
Lögreglukór Reykjavíkur kemur fram á tónleikum í Fella- og Hólakirkju laugardaginn 5. apríl kl. 17. Lögreglukórinn mun sameinast fjórum kirkjukórum í Breiðholti og Kópavogi í einn stóran kór, en á dagskrá tónleikanna er Requiem (sálumessa) eftir enska tónskáldið John Rutter. Tónleikarnir eru hluti af Listahátíð Breiðholts, en frekari upplýsingar má nálgast á www.facebook.com/djupogbreid